Ég synti mitt 8. Guðlaugssund í ár, sem alltaf fer fram 12. mars ár hvert. Þá syntu synir mínir í fyrsta skiptið, Gísli, Árni og Baldur auk Birgis Jósafatssonar - gamall félagi. Syntir eru 6 km í 25 m laug eða 240 ferðir. Ég setti perónulegt met í ár, þegar ég lauk sundinu á 1:40:43 klst. (samsvarar 16:47 mín. á km.).


